Erla
fróðlegt og skemmtilegt
05.11.2007 16:51:05 / eerla

LÖNGU HÆTT AÐ BLOGGA

Ekki veit ég hvaða jólasveinar kíkka alltaf reglulega hingað inn, en það er komið rúmt ár síðan ég tjáði mig síðast á þessa síðu og ég hef ekki í hyggju að gera það aftur í bráð! Þessi síða er sumsé dauð og þið getið hætt að fara á síðuna á bloggrúntinum!

 En eins og þið eflaust vitið er ég orðin mamma og ef þið viljið fylgjast með prinsessunni minni þá er þetta síðan hennar www.barnaland.is/barn/64146 svo sendiði mér bara skilaboð um að ykkur vanti lykilorð! 

 Kv. Erla


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 08:55:12 / eerla

Ok, blogg fyrir Kollu!

Hún Kolla mín í DK er aldeilis orðin brjáluð á að ég hafi ekki bloggað í allt sumar... en nú er skólinn byrjaður þannig að ég hef aftur "tíma" til að blogga! 

Af mér er allt fínt að frétta, skólinn kominn á fullt- fimleikarnir farnir í gang, var ekki auðvelt að koma þeim í gang en það er að hafast!

En Kolla... fór nú bara að hlæja í gærkvöldi, Siggi var að segja mér frá nýrri gellu sem byrjaði að vinna hjá þeim á strikinu! Síðan gerist það að klakavélin stíflast og áður en hann vissi af þá var gellan komin hálf inn í klakavélina og lét kokkana rétta sér skrúfjárn og önnur verkfæri... ég allavega sprakk úr hlátri og hugsaði bara- KOLLA- hversu oft lagaðir þú klakavélina, uppþvottavélarnar, dælurnar.... allt saman! Síðan þegar þú fórst, þá varð ég að taka við af þér... hef reyndar ekki sömu tallent og þú í þessu en mér tókst samt að laga klakavélina einu sinni og gat reddað öðrum hlutum eins og blikkandi ísskáp og svona lagað!

En best ég fylgist betur með hérna í tölfræðilegri greiningu og markaðsrannsóknum... soldið spesssssss dude sem er að kenna okkur!

Þetta var eitt stk. dead boring blogg... en  samt blogg....

Heyrumst! EO

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.06.2006 13:14:33 / eerla

Búkolla...

Helgin var nokkuð góð... var að vinna á föstudags og laugardagskvöldið og skemmti mér konunglega með henni Beggu og öllum hinum gellunum! En ætla að segja ykkur frá "samlokumanninum" sem ég var næstum búin að biðja að giftast mér... hehe. Málið var að í vinnunni á föstudagsnóttina þá var ég að ærast úr hungri, svo kom maður á barinn og vildi endilega bjóða mér upp á skot en mig langaði ekki neitt í það og afþakkaði og hann gaf sig ekkert, spurði alltaf en eitthvað annað... á endanum sagði ég ef þú ættir e-a að borða þá myndi ég þyggja það! Gaurinn bara ég skal hlaupa út í sjoppu fyrir þig... ég fór náttla bara að hlæja og sagðist nú ekki getað þegið það og eitthvað. Síðan ca. korteri seinna kemur hann til mín á barinn og réttir mér huges Búkollusamloku! ég bara ertað grínast eða? En honum var fúlasta alvara, og ég er að segja ykkur það að hann bjargaði lífi mínu, ég var varla vinnufær fyrir hungri en eftir þetta vann ég eins og stormsveipur... þreif alla efri hæðina á met tíma held ég! Ég var svo ánægð með þessa loku að ég var alvarlega að spá í að biðjann að giftast mér :o

Annars hefur nú ekki mikið markvert gerst, allavega ekkert sem að á heima hér...

Stay fresh! ERLA


» 9 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 13:13:23 / eerla

Finally að það kemur færsla

Já góðann dag gott fólk.

Ekki búin að vera mjög dugleg að blogga núna... uhh veit ekki alveg hvað veldur en kannski tímaskortur og almennur aumingjaskapur hafi ráðið mestu um það! En allavegana ég er mætt aftur og vonandi að ég verði öflugri í þetta sinn!

En prófin eru búin og gengu bara nokkuð vel, náði öllu í fyrst tilraun þannig að ég er búin með 1/3 af BS gráðunni! Svo er ég byrjuð að vinna í bankanum, er að vinna sem þjónustufulltrúi í Landsbankanum og er nú bara nokkuð sátt við jobbið mitt. Svo fæ ég nú ekki frí frá fimleikunum strax, verð bara í fríi frá æfingum í júlí og í júní og ágúst verður lögð áhersla á þrek og tækni þannig að ég fæ víst ekkert að minka vöðvamassa minn straxzzzzzzzzz! Þetta hlýtur að enda með flottum six-pack maga og látum! Nei segi nú bara svona.

Annars er bara ljúft að frétta af mér, gott að vera búin að fá EvuZ og Áslaugu heim! Vantar bara að fá EvuÞ líka hingað en hún er nú í góðu glensi í London baby og átti afmæli í gær... hún var löngu búin að fá afmælisgjöfina frá mér, vona að hún geti notað hana í glensinu í London. Svo á minns afmæli eftir 24 daga! úff nú finnst mér ég vera að verða gömul :cry:  Er að vinna á glamour um helgina endilega heilsiði upp á mig þar...

Æji EvaZ var eiginlega bara að blöggast fyrir þig en hef ekki neitt að segja... en bloggið kom allavegana... reyni að vera með massívri færslu næst....

kv. EO

ps. sæti smiðurinn er aftur mættur í bankann... hehe


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.05.2006 14:27:04 / eerla

He he ég á tölvudraug....

Ég er ekki að djóka en það kom draugur í tölvuna mína áðan... og byrjaði að spila lag með James Blunt! Það var ekkert forrit opið sem gat hugsanlega spilað tónlist! Ég fór í task manager en end taskaði öllum forritunum sem voru opin en samt spilaðist lagið u´re so bjútífúl.... þessi draugur er algjör hjartaknúsari! Svo þegar lagið var búið þá kom bara e-a annað lag sem ég hef aldrei heyrt áður! Ég prófaði að spila aðra tónlist á radioblogclub og þá spilaðist það bara yfir hina tónlistina! Á endanum þá þurfti ég að restarta tölvunni til að slökkva á þessari "drauga" tónlist!
Held ég verði að gefa draugnum eitthvað nafn... ef þið hafið einhverjar hugmyndir þá endilega skrifiði það í komment!

kv. Erla og draugurinn

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 11:52:34 / eerla

PRÓF, próf og meiri PRÓF

hæhæ, ég kom heil og höldnu heim frá NY... þessi ferð var æði í alla staði. Veðrið lék við okkur alla dagana- sól og steikjandi hiti. Hótelið var snilld, héldum að við værum á einhverju krappí hóteli en það var mjög flott, ný uppgert! Svo var bara labbað allann daginn, þræddum búðirnar á fifth avenue og í soho, svo skruppum við til New Jersey í einhver outlet! Vorum reyndar send á vitlausann stað, ætluðum að fara þar sem nike og eitthvað var en fundum samt Tommy Hilfiger, Calvin Klein og einhver fleiri. Síðan fórum við að sjálfsögðu á þessa helstu staði- Emp.state, World trade center, er reyndar ekki mikið að sjá þar akkúrat núna, Frelisis styttuna sáum við úr fjarlægð, svo lágum við tvisvar í sólbaði í Central park og svona. Eignuðumst svo vini á kennsluhárgreiðslustofu frá TIGI og Tony and Guy! Mjög fyndið, ætluðu að bjóða okkur að gerast hármódel hjá þeim... en við bara urðum að ná flugvélinni seinna um daginn, annars hefði maður nú að sjálfsögðu slegið til! Svo tókum við skoðunarrúnt um NBC stúdíóin sem var stuð. Og ekki má gleyma að segja frá Lion King, en sú sýning var æði! Mæli með að allir sem eru að hugsa um að fara til NY, panti sér líka miða í leikhúsið! Þessi sýning var æði í meira lagi! Var með gæsahúð allann tímann því þetta var svo fallegt!  En já ég er úber hrifin af þessari borg og það er alveg á hreinu að ég á eftir að fara þangað aftur! Verð bara að safna aftur pening og koma vísa kortinu aftur í núll!!! Ég verslaði alveg slatta þarna, tvenna pumaskó, hlaupaskó, háhælaðagelluskó, stígvél, pilsdragt, jakka, dísel gallabuxur..... nenni ekki að telja það upp. En Brynja frænka.... sorrý ekki vera reið, við bara vorum on fire frá 7 á morgnana til klukkan 10 á kvöldin og þá lagðist ég upp í rúm og rotaðist áður en hausinn snerti koddann. Ég ætlaði svo að hitta þig... en þetta var ekki alveg nógu langur tími þarna... ég veit ég er ömurleg frænka!

En jæja best að fara að læra um staðalfrávik, fervik  öryggisbil og einhver læti úr tölfræðinni! Ótrúlega boring fag eitthvað!

En þið sem eruð í prófum gangi ykkur allt í haginn, þið hin... djöfull eigiði gott að þurfa ekki að fara í próf.

kv. Erla perla

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 12:48:44 / eerla

New York baby

Jæja góðir hálsar, NYC eftir 10 klukkutíma! Finn fyrir spennuhnút í maganum, sannfærð um að ég sé að gleyma einhverju mikilvægu, en þegar málið er athugað þá er ég með allt það sem skiptir máli. E-miðann, passann og vísakortið mitt! Svo nokkra aðra mis nauðsynlega hluti eins og eina skólabók og glósur tengdar því fagi og smá vegis af fötum en samt lítið því ég ætla að versla!!!

En já ég er orðin ansi hreint spennt, byrjuð að reyna að plana, gengur ekkert alltof vel, en það eitt er víst að á morgun þá er ég að fara að versla í NY! Svo á sunnudag verður tekinn skoðunarrúntur og farið í leikhúsið, á mánudaginn eru búðirnar örugglega líka lokaðar þannig að þá skoðum við meira. Ég ætla líka að reyna að komast á skautasvellið í Centralpark, Begga pantaði nefnilega mynd af mér þar! Nei nei engar sérþarfir í gangi þar á bænum! hehe... Svo er stefnan tekin á að klára innkaupin á þriðjudag, svo er miðvikudagurinn óráðinn!

En jæja hef ekkert meir að segja í bili, hafið það nú ógó gott um páskana, étið yfir ykkur af súkkulaði, djammið af ykkur rassgatið og kannski kíkið í skólabók inn á milli ef þurfa þykir! En umfram allt veriði hress!

En já legg af stað út á völl eftir rétt rúmann klukkutíma þannig að best að athuga hvort það sé ekki allt klárt! blesssssssssssssssss í bili

PS. Þið fáið svo ferðasöguna þegar ég kem til baka! 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 09:24:27 / eerla

Ekki segja mér að þetta sé svona?!?

Hvað þarf til að gera konu hamingjusama???
Það er ekki erfitt, að gera konuna hamingjusama, þú þarft
bara að vera:

1.         vinur
2.         félagi
3.         ástmaður
4.         bróðir
5.         faðir
6.         húsbóndi
7.         yfirmaður
8.         rafvirki
9.         trésmiður
10.        pípari
11.        handlaginn
12.        skreytimeistari
13.        stílisti
14.        sérfræðingur í kynlífi
15.        mannþekkjari
16.        sálfræðingur
17.        hagfræðingur
18.        reiknimeistari
19.        góður huggari
20.        góður hlustandi
21.        skipuleggjari
22.        góður faðir
23.        snyrtilegur
24.        samúðarfullur
25.        sportlegur
26.        hlýr
27.        skemmtilegur
28.        aðlaðandi
29.        snillingur
30.        fyndinn
31.        hugmyndaríkur
32.        mjúkur
33.        sterkur
34.        skilningsgóður
35.        þokkafullur
36.        prúður
37.        metnaðarfullur
38.        hæfileikaríkur
39.        þolgóður
40.        skynsamur
41.        trúr
42.        ábyggilegur
43.        ástríðufullur

og gleymir aldrei að:

44.       gefa henni gjafir reglulega
45.       fara með henni að versla
46.       vera heiðarlegur
47.       vera örlátur
48.       að stressa hanna ekki
49.       horfa ekki á aðrar konur

og um leið þá verðurðu líka að:

50.       veita henni mikla athygli, og hugsa ekki mikið um sjálfan þig
51.       gefa henni allan tíma sem hún þarf
52.       gefa henni mikið frelsi, ekki hafa áhyggjur af því hvert hún fer

Það er mjög áríðandi:

53.       að gleyma aldrei:

    1.         afmælisdögum
    2.         brúðkaupsdögum
    3.         plönum sem hún hefur ákveðið

TIL AÐ GERA KARLMANN HAMINGJUSAMANN :

1.         Gefa honum að borða
2.         Sjá til að hann fái það reglulega
3.         og þegja svo....

OMG erum við svona mikil pain in the ass stelpur?


» 12 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 14:08:14 / eerla

Enn eitt klukkið

"lilti" bróðir minn klukkaði mig með klukki sem hann samdi sjálfur, ætli mar verði ekki að svara því?

1. Ef þú hefðir fundið andalampan í Aladín, hefðirðu frelsað andann með síðustu óskinni? Nei ekki séns! Hef fulla þörf á þremur óskum!

2. Nirvana eru? Bara fínasta hljómsveit!

3. Ef þér yrði boðið hlutverk í leiknu útgáfunni af Lion King, hvern myndirðu leika og hví?
Ég væri sennilega Nala eða Tímon... er ekki viss hvor!

4. Simpsons, Futurama, South Park eða Family Guy?
Allt saman ógó leiðinlegt!
 
5. Lífið er? eingöngu til þess að hafa gaman af!

6. Bubbi eða KK? KK ekki spurning

7. Hvaða vídeo leiga er að gera það núna? Ekki Video Barinn allavega! Finnst reyndar flestar videoleigurnar ömurlegar núna... 

8. Miðvikudagar eru? Langir

9. Þessi spurningarlisti er? Sumar spurningarnar ansi góðar en aðrar ömurlegar... 

10. Hverja ætlar þú að klukka?
Stend ekki í þessu rugli, þið getið svosem svarað þessu ef þið viljið!

en ætla að fylgjast með fyrirlestrinum um markaðsetningu Norðlenska... við síumst!
JeRlY

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 20:31:33 / eerla

úllalla...

Ég er að fara til New York eftir einn mánuð... ég er orðin illa spennt fyrir ferðinni! Og það er akkúrat eitt ár síðan ég yfirgaf Möltu og skrapp til London í fimm daga!

Annars ekki mikið að frétta af mér, er bara í skólanum, á æfingu eða í vinnunni, geri ekki margt annað þessa dagana! En ætla að reyna að vera í fríi um helgina eins og ég á að vera, enda crazy að gera í skólanum, er samt e-a lítið um starfsfólk sem getur unnið þessa helgi! En er það minn höfuðverkur? uhhh held ekki!

En jæja best ég fari að gera e-a af viti!
endilega kommentið nú... kv. ERla

» 7 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 15:25:29 / eerla

ohhh svo bjútífúl!

1. I love you not because of who you are, but because of who I am when I
am with you..

 2. No man or woman is worth your tears, and the one who is, won't make you
cry.

 3. Just because someone doesn't love you the way you want them to, doesn't
mean they don't love you with all they have.

4. A true friend is someone who reaches for your hand and touches your
heart.

5. The worst way to miss someone is to be sitting right beside them
knowing you can't have them.

6. Never frown, even when you are sad, because you never know who is
falling in love with your smile.

7. To the world you may be one person, but to one person you may be the
world.

8. Don't waste your time on a man/woman, who isn't willing to waste their
time on you.

9. Maybe God wants us to meet a few wrong people before meeting the right
one, so that when we finally meet the person, we will know how to be
grateful.

10. Don't cry because it is over, smile because it happened.

11. There's always going to be people that hurt you so what you have to do
is keep on trusting and just be more careful about who you trust next time
around.

12. Make yourself a better person and know who you are before you try and
know someone else and expect them to know you.

13. Don't try so hard, the best things come when you least expect them to.



  REMEMBER: WHATEVER HAPPENS, HAPPENS FOR A REASON.


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 21:22:11 / eerla

MÁNUDAGUR:

Mér finnst mánudagar eiginlega ekkert skemmtilegir dagar, sérstaklega ekki svona mánudagar! Er held ég að verða veik, hélt ég hefði bara misst röddina sökum þess að ég söng Silvíu Nótt lagið svo oft en nú er þetta komið í svaka hálsbólgu, kvef og hausverk! DAMN!

En helgin var snilld... vann á fimmtudaginn sem var fínt sko, reyndar ekki mikið að gera, en Ásgeir spilaði nú Silvíu extra oft fyrir mig og ég söng hástöfum og dansaði örugglega helling á barnum milli þess sem ég spjallaði við Andra og Heidda.

Síðan á föstudaginn ætlaði ég nú í bíó en bíópartnerinn beilaði svona big time á mér svo ég ákvað að fá Maju til að koma bara á djammið með mér! Sé ekkert eftir því... vá hvað ég skemmti mér konunglega! Óli Palli var massa góður!

Svo á laugardaginn skemmti ég mér ekkert síður í vinnunni! Brjálað að gera á barnum og Silvía Night shining in the light kom held ég fimm sinnum... enda gaf röddin sig bara í miðju lagi og er bara hálf í dag...

Sunnudagurinn var svo bara nokkuð rólegur hjá mér, reyndar voru litlu fimleikamýsnar mínar með sýningaratriði í Sjallanum og stóðu sig að sjálfsögðu eins og hetjur!

En Dagný enn og aftur að gera góða hluti í ÓL... 23. sætið í risa sviginu, hún er snillingur og ekkert annað! Vonum svo að stórsvigið gangi nú vel hjá henni!

En ætla að fara að læra eitthvða smá núna... endilega kvittið fyrir komu ykkar... annars nenni ég ekkert að blogga og smá spurning svona í lokin- hvar á ég að vinna í sumar? endilega komið með tilllögur folks...

» 7 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 23:46:58 / eerla

Brun, klukk

Dagný frænka var að gera rooooosalega hluti á ÓL í dag... varð í 23 sæti í bruninu, til hamingju með það snillingurinn þinn!

Svo á Kristín afmæli í dag 23 ára gellan... já og fótboltatvíbbarnir Degen-bræður (annar spilar með FCBasel og hinn með Dortmund) þetta er dagur tölunnar 23 held ég...

En ég var klukkuð svo ég skorast ekkert undan þó svo ég nennessu ekki neitt... en hér getiði grenslast um mig...

4 störf sem ég hef unnið um ævina:

  • Mc Donald´s í Sviss
  • Café Karolína
  • Landsbankinn
  • Café Amour

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

  • Lion King
  • Bad Boys
  • Love actually
  • Shrek

4 staðir sem ég hef búið á

  • Hrafnagilsstræti 31
  • Elbisstrasse 4, Füllinsdorf, Sviss
  • Borgarhlíð 6c
  • Sunnuhlíð 11

4 sjónvarpsþættir sem mér líka:

  • Lost
  • ER
  • OC
  • Rockstar INXS

4 staðir sem ég hef verið á í fríum

  • Spánn
  • Ítalía
  • Malta
  • Túnis

4 síður sem ég heimsæki daglega

  • mbl.is
  • þessí síða
  • landsbanki.is
  • web-ct síðan

4 réttir sem ég elska að borða

  • Spari fiskrétturinn sem mamma gerir
  • Lasagna
  • Hreindýrakjöt
  • Humar

4 bækur sem ég hef lesið

  • Da Vinci Lykillinn (snilld)
  • Englar alheimsins
  • Bridget Jones Diary
  • Economics

4 staðir sem ég myndi vilja vera á núna:

  • New York (coming baby coming...)
  • Torrino á OL
  • Basel
  • Ástralíu

4 bloggarar sem ég klukka:

  • er að spá í að vera ekkert svona ömó og klukka einhvern... ég klukka sumsé engann...

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.02.2006 22:56:17 / eerla

For crying out loud...

 Ok fólk... hugsa smá áður en þið skírið barnið ykkar...

Bekkjarafmælið


Ósk Ýr gekk rösklega með Brand Ara í afmælið til Egils Daða því hún var
að verða of sein að sækja Leif Arnar og Loft Stein í leikskólann.
Borgar Vörður, pabbi Egils Daða, tók á móti þeim.
Þarna voru Lind Ýr, Líf Vera, Sól Hlíf, Ævar Eiður og Hreinn Bolli.
Erlendur Hreimur kom blaðskellandi innan úr stofunni og vinkonurnar
Vísa Skuld og Dís Ester fast á hæla honum.
Mýra Þoka lét lítið fyrir sér fara úti í horni.
Innan úr herbergi Egils Daða bárust ógurlegir skruðningar - "#%=&#$&/(=!z#$!/!=!
Línus Gauti, Barði Vagn og Mist Eik voru greinilega mætt. En hvar var Ríta Lín?
Fyrir utan var Sædís Líf í rauðum fólksvagni.
Hægt og sígandi nálgaðist Jökla Þoka eftir stígnum.
Hún var orðin alltof sein í afmælið.

Annars er ég nú bara spræk... voðalega órómantískur Valentínusardagur hjá mér... finnst þetta hálf ömurlegur dagur, kannski ég sé bara bitur? Hef reyndar bara einu sinni verið með strák á þessum merka degi og það var það al mesta og versta fífl sem ég hef verið með svo ekki var það gáfulegt! En ætlaði mér ekki að deila ósigrum mínum með ykkur....

Dagný frænka að fara að keppa á morgun, vonum  að hún standi sig stelpan! Og já eftir nákvæmlega tvo mánuði verð ég á JFK flugvellinum hugsanlega komin með töskurnar að reyna að ná mér í Taxa... jíhaaa

Lifið heil og já mér finnst soldið spes að sjá 50 heimsóknir og aðeins eitt komment í dag... djöfulsins dónar eru þið!


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 14:00:44 / eerla

Smá pæling í gangi!

 Ég er búin að spá mjög mikið í það hvernig ég geti aukið tekjur mínar... ein hugmyndin er náttla svo crazy  en mér finnst hún eiginlega svo klikkuð að ég verð að koma henni á framfæri... ég reyndir átti ekki fyrst hugmyndina heldur bekkjarbræður mínir, en ég útfærði hana betur... (strákar ég er ekkert að stela ykkar hugmynd... bara koma henni betur á blað...þið getið orðið mínir business partners)

     Allavega miðað við ástand heimsins í dag, þá datt mér í hug að koma upp saumaverksmiðju í Tælandi, ég myndi borga starfsmönnunum aðeins hærri laun heldur en gerist og gengur í því landi svo ég fái pottþétt starfsmenn... síðan kaupi ég ódýrt efni í litunum hvítur, rauður og dökkblár. Síðan læt ég starfsmennina fjöldaframleiða danska og bandaríska fánann! Síðan fæ ég mér sölumenn í strangtrúuðu múslimaríkjunum. Einhver mætti spyrja sig hvernig ég ætli að vinna mér traust þeirra þar sem ég sé nú frændi dananna...en ég  hef heimsótt eitt slíkt ríki, þar sem tollvörðurinn sem skoðaði passann hafði ekki glóru hvar Ísland var staðsett og spurði: ahhh Iceland, isn´t that next to New Zealand? ég náttla myndi núna þá bara segja jújú, til að halda mér á lífi (ekkert að deila því að ég sé svo gott sem komin af dönum)! Síðan verða fánarnir auglýstir sem mjög "eldfimir" og seldir í tonnavís til þess eins að múslimarnir geti nú losaðu um reiði sína brennt þá! Ég meina þeir hljóta að fara að verða uppiskroppa með fánana þarna! Síðan segir sagan að þeir sniðgangi danskar vörur, þar eru til dæmis mjólkurvörur ein af helstu söluvörunum... svo ég flyt bara út skyr til þeirra og kynni þeim fyrir ágæti íslensku beljunnar... verst að við eigum ekki nóg af beljum til að flytja út mjólkurvörur... en ég er með lausn.... við bara byggjum huges fjós við Kárahnjúka... flytjum bara fleiri starfsmenn inn til að vinna þar... þar er nóg pláss til að byggja risa hús, þar eru fullt af vinnuvélum sem hægt væri að samnýta... svo bara fjöldaframleiðum við mjólkina og búum til skyr og jógúrt og svona. Svo bara yfirtökum við markaðinn sem danirnir voru búnir að byggja upp og fólkið þarna verður sannfært um að þeir séu að drekka mjólk frá "New Zealand" eða eitthvað...

En já bara aðeins að pæla....


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5